Dagsferðir: Reykjanesið & sigling Dagsferð & foss í "klakaböndum" Skemmtiferð í Hvalfjörðinn Bláa lónið & undirdjúpin Hellar & Humar Hasarferðin | | Reykjanesið & sigling  Hafsúlan Dekurliðið sótt á höfuðborgarsvæðið kl. 14:00 . Bláa lónið og léttur hádegisverður. Gjáin, Saltfisksetrið í Grindavík, Reykjanesviti,Gunnuhver, Stampar og fleira Kl. 18:00 Sigling með Hafsúlunni frá Ægisgarði í Reykjavík. Kvöldverður um borð í skipinu og opinn bar. Komið aftur í höfn kl. 21:00. Matseðill: Blandað hlaðborð. Hafið sambandi og við gerum ykkur gott tilboð. Lágmarksfjöldi er 40 manns. | | Dagsferð & foss í "klakaböndum"  Gullfoss Lagt af stað kl. 13:00, Gullfoss og Geysir skoðaðir og deginum varið á þessum slóðum. Haldið til baka kl. ca. 18:00 og komið við á humarstaðnum Við fjöruborðið á Stokkseyri og borðaður hinn landsfrægi humar staðarins og komið heim um kl. 23:30. Matseðill: Hinn landsfrægi humarseðill, en einnig hægt að fá lambakjöt.
Hafið sambandi og við gerum ykkur gott tilboð. Matseðill Fjöruborðsins | | Skemmtiferð í Hvalfjörðinn  Hvalfjörður Lagt af stað kl. 13:00. Leiðsgögumaður tekur á móti hópnum inn í botni Hvalfjarðar, sagðar verða sögur, sagnir og ljóð ásamt heimsókn á Bjarteyjarsand með berjabruggi og öðru sem kemur skemmtilega á óvart. Eftir skemmtilega dagsstund í firðinum er móttaka á Hótel Glym þar sem fordrykkur er á barnum ásamt óvæntum skemmtilegum verkefnum. Um kl. 18:00 er boðið upp á glæsilegt kvöldverðarhlaðborð að ítölskum hætti. Komið heim um miðnætti.
Hafið sambandi og við gerum ykkur gott tilboð. Matseðill Hótels Glyms | | Bláa lónið & undirdjúpin  Hefur þig ekki alltaf dreymt um að fá að skoða undirdjúpin og synda með höfrungum? Ef svo er, þá er byrjunin að skella sér á kynningu í sportköfun með Sportköfunarskóla Íslands. Við sækjum ykkur um kl. 13:00 og ökum til Keflavíkur, þar sem allir fá að kynnast sportköfun. Kynningin fer fram í gömlu Sundhöllinni. Á eftir er möguleiki að fara í Bláa lónið til að slappa af. Ferðalok um kl. 18:00
Hafið sambandi og við gerum ykkur gott tilboð. | | Hellar & Humar  Lagt af stað kl. 14:00. Ekið er sem leið liggur austur fyrir fjall nánar tiltekið að Hellnum þar sem skoðaðir verða manngerðir Hellar frá tímum papa. Næst er haldið að Hestheimum þar sem kenndur verður línudans en það er eitthvað sem engin má láta fram hjá sér fara. Eftir það er haldið að humarstaðnum Við fjöruborðið á Stokkseyri og borðaður hinn landsfrægi humar staðarins og komið heim um kl. 23:30. Matseðill: Hinn landsfrægi humarseðill, en einnig hægt að fá lambakjöt. Hafið sambandi og við gerum ykkur gott tilboð.
Matseðill Fjöruborðsins | | Hasarferðin  Þetta er sannkölluð "action" ferð þar sem þátttakendur hafa mikið fyrir stafni. Hópurinn er sóttur kl. 14:00 og byrjað á að fara á hestbak. Eftir skemmtilegan útreiðatúr í fallegu umhverfi er farið á skauta í skautahöllinni í Laugardal þar sem fólk keppist við að sýna listir sínar. Eftir hasarinn er tilvalið fyrir hópinn að láta keyra sig á notalegt veitingahús.
Hafið sambandi og við gerum ykkur gott tilboð. | Ath. Þessar ferðir eru tillögur. Hægt er að breyta ferðum og tímasetningum eftir óskum viðskiptavina. Upplýsingar og pantanir í s: 420-6000 | | SBK - Grófin 2 - 4 - 230 Keflavík - Sími: 420 6000 - Fax: 420 6009 -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
|
Síðast uppfært Föstudagur, 23. Maí 2008 00:15 |