Upphafssíða Aðrar ferðir
Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Aðrar ferðir:

Bátasafn Gríms
Saltfisksetrið
Dagsferð suður með sjó
Gullfoss & Geysir

 

Bátasafn Gríms

Hópurinn er sóttur c.a. kl. 10:00 og ekið rakleiðis suður með sjó nánar tiltekið til Reykjanesbæjar. Í Reykjanesbæ er skoðað Bátasafn Gríms sem er frábært safn með um 60 mjög nákvæmum bátalíkönum. Eftir skoðun á bátasafninu er farið í mat á Café Duus þar sem boðið er upp á súpu og brauð. Komið er heim aftur um kl. 14:00

Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð.

 

Saltfisksetrið

Lagt af stað kl. 10:00 og ekið suður til Grindavíkur þar sem hið nýja saltfisksetur er skoðað. Eftir skoðun á safninu er farið í hádegismat í Sjómannastofuna Vör í Grindavík. Heimakoma er um kl. 14:00.

Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð.

 

Dagsferð suður með sjó

Hópurinn sóttur kl. 09:00 og ekið til Sandgerðis þar sem Fræðasetrið er skoðað en þar er að finna allskyns sjávardýr og fleira, mjög spennandi og fræðandi safn. Eftir fræðandi ferð er farið í hádegismat á Vitann við höfnina í Sandgerði. Að hádegismat loknum er ekið yfir í Garðinn þar sem skoðað verður Björgunarminjasafn Íslands. Heimkoma um kl. 15:00

Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð.

 

Gullfoss & Geysir

Geysir
Hópurinn sóttur kl. 09:00 og ekið sem leið liggur austur fyrir fjall eða nánar tiltekið austur að Gullfoss þar sem fossinn gæti hugsanlega verið í fallegum klakaböndum. Eftir skoðunarferðina við Gullfoss er ekið að Geysi í Haukadal þar sem hverasvæðið verður skoðað. Hádegismatur verður snæddur á Hótel Geysi. Heimkoma um kl. 15:00.

Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð.
Ath. Þessar ferðir eru tillögur.

Hægt er að breyta ferðum og tímasetningum eftir óskum viðskiptavina.

Upplýsingar og pantanir í s: 420-6000

SBK - Grófin 2 - 4 - 230 Keflavík - Sími: 420 6000 - Fax: 420 6009 - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Síðast uppfært Föstudagur, 23. Maí 2008 00:32