Kvöldferðir:
Draugaferðin Hestheimar Sjávarréttir og sundin blá Keflavíkurnætur Humarveisla Lónið í Grindavík Hveradalir & skálinn Gokart & Lónið | | Draugaferðin
Ekið sem leið liggur að Stokkseyri þar sem Draugasetrið verður heimsótt. Boðið verður upp á fordrykk sem nefnist Móramjólk og samanstendur af Vodka, Kahlua, rjóma og mjólk Þeir sem ekki treysta sér í draugaganginn geta slappað af á barnum og notið hins frábæra útsýnis yfir hafið.
Eftir draugaganginn verður farið á Kajak. Siglt er í u.þ.b. 30 mínútur um nágrenni Stokkseyrar Eftir Kajaksiglingu sem reynir aðeins á vöðva sem alla jafna eru í slökun, er gott að láta líða úr sér með því að taka sundsprett og leggjast svo í heitu pottana í sundlauginni. Kvöldverður á veitingastaðnum við Fjöruborðið þar sem humarveisla verður á borðum fyrir hópinn.
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð. | | Hestheimar
Hópur sóttur kl. 17.00. Brunað með hópinn á Hestheima þar sem hjónin Gísli og Ásta Begga taka á móti ykkur. Húsbóndinn á bænum byrjar á því að fara með ykkur í fjörugan línudans á meðan húsfreyjan græjar hlaðborðið. Boðið verður síðan upp á glæsilegt hlaðborð og desert.
Hægt væri að fá trúbador á svæðið sem syngur með ykkur hópsöng o.fl. eða spilar dansmúsik þannig að hægt sé að sprikla meira fram á kvöld (Aldrei að vita nema tekin verði nokkur kántrýlög, þar sem þið verðið nú útskrifuð úr línudansi Gísla).
Heimför kl. cirka 12:00-01:00.
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð. | Sjávarréttir og sundin
 Sigling með Hafsúlunni, góður matur um borð og einstakt útsýni. Siglt er um sundin á meðan gestir njóta veitinga af hlaðborði. Ef aðstæður leyfa setjum við út skelplóg og rannsökum það sem upp kemur. Ferskari getur forrétturinn/eftirrétturinn ekki orðið.
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð. Lágmarksfjöldi er 40 manns.
Mateðill Hafsúlunnar
| | Keflavíkurnætur Lagt af stað kl. 18:00, borðað á Veitingastaðnum Ránni, í Keflavík. Ráin er einn glæsilegasti veitinga- og skemmtistaður landsins með útsýni yfir upplýst bergið. Eftir ljúffengan kvöldverð er stiginn dans og dansað fram eftir kvöldi. Heimkoma um kl. 23:30-24:00 Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð.
Matseðill: Ráin
| | Humarveisla Lagt af stað kl. 18:00, borðað á humarstaðnum Við fjöruborðið á Stokkseyri og við tekur skemmtileg kvöldstund. Komið heim um kl. 23:30.
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð.
Matseðill Fjöruborðsins | | Lónið í Grindavík  Hópur sóttur kl. 14.00. Ekið til Grindavíkur þar sem skoðað verður Saltfisksetur Íslands og Gjáin. Á Saltfisksetrinu er farið yfir sögu saltfisksins á Íslandi, þar sem saltfiskvinnslu á Íslandi er gerð mjög góð skil. Sýningin á Gjánni lýsir á áhugaverðan hátt jarðfræði Íslands, Reykjaness og Svartsengis og útskýrir hvernig ólíkar fræðigreinar mætast við rannsóknir og eftirlit háhitasvæða. Jarðborun á háhitasvæði er útskýrð og farið er í gegnum framleiðsluferli rafmagns og hitaveituvatns í orkuverinu í Svartsengi. Að lokinni sýningu mun hópurinn baða sig í náttúrulegu umhverfi Bláa Lónsins og bragða á hinum fræga Bláa Lóns kokteil. Þegar hópurinn er svo loks orðinn hreinn og fínn munu matreiðslumenn Bláa Lónsins töfra fram 3ja rétta ljúffengar sælkeramáltíðir. Að þessu loknu mun hópurinn aka áleiðis til Reykjavíkur. Heimkoma um kl. 23:30-24:00
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð. Matseðill Bláa Lónsins | | Hveradalir & skálinn  Lagt af stað kl. 18:00, komið í Skíðaskálann í Hveradölum um kl. 19:00. Borðhald og fjör frameftir kvöldi og komið heim um miðnætti.
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð.
Matseðill Skíðaskálans | | Gokart & Lónið  Starfsmenn sóttir á vinnustað kl. 17:00 og ekið á GO-Kart svæðið í Njarðvík. Eftir æsispennandi kappakstur er farið í Bláa Lónið þar sem fólk getur farið í bað, borðað góðan mat eða bara notið náttúrunnar og haft það huggulegt. Komið er til baka 23:00. (Ef að hópur ætlar í mat)
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð.
| Ath. Þessar ferðir eru tillögur. Hægt er að breyta ferðum og tímasetningum eftir óskum viðskiptavina. Upplýsingar og pantanir í s: 420-6000 | | SBK - Grófin 2 - 4 - 230 Keflavík - Sími: 420 6000 - Fax: 420 6009 -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
|
Síðast uppfært Föstudagur, 23. Maí 2008 00:54 |