Helgarferðir:
Gaman saman Grímsárævintýri Flúðir & þing til forna Vík & drangarnir Keflavíkurdekur & go-kart Snæfellsnesið & Örninn | | Gaman saman
Hópur sóttur kl. 14:00 og ekið sem leið liggur í suður í Keflavík, þar sem hópurinn innritar sig á Hótel Keflavík. Eftir það verður brunað suður í Sandgerði, farið í vísindaferð í Fræðasetrið og í Púlsinn ævintýrahús. Þar verður skemmtprógram sem kallast "Gaman Saman" nokkurs konar hópefli í léttum gír. Þetta er gífurlega skemmtileg afþreying og heyrst hefur að fólk komi skælbrosandi og í brjáluðu stuði út frá henni. Eftir hristinginn í Púlsinum verða Garðbúar heimsóttir og Byggðasafnið í Garðinum skoðað. Hægt væri að fara í Gokart eða sund allt eftir óskum hópsins. Endað verður í Keflavík á völdu veitingahúsi þar sem borin verður á borð ljúffengur kvöldverður og hópurinn skemmtir sér fram á kvöld. Gist á Hótel Keflavík. Heimför kl. 12:00 daginn eftir. | | Grímsárævintýri  Grímsá sveitasetur - Höll drottningarinnar Hópur sóttur um kl. 14:00 og ekið sem leið liggur upp á Akranes þar sem farið er í hið fræga safnasvæði. Þegar skoðuninni á safninu lýkur er ekið rakleiðis upp í Borgarfjörð að Grímsá þar sem fyrirhugað er að borða góðan mat, fara í heitu pottana, skemmta sér vel og gista. Hópurinn er kominn heim um hádegi daginn eftir. Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð. | | Flúðir & þing til forna  Hótel Flúðir Lagt af stað um hádegisbil frá vinnustað á Flúðir. Ekin skoðunarferð um Suðurland, Þingvellir - Gullfoss -Geysir. Kvöldverður á Hótel Flúðum og slegið upp balli fram eftir nóttu og gist á hótelinu.
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð. | | Vík & drangarnir  Skógarfoss Hópurinn sóttur um hádegisbilið á laugardegi og ekið sem leið liggur austur. Seljalandsfoss, Skógarfoss, og Reynisdrangar skoðaðir. Komið á hótelið síðla dags. Fólk teygir úr sér til kl.20:00 þegar kvöldverður hefst. Heimferð er um kl. 12:00 á sunnudeginum og komið til höfuðborgarinnar um kl. 18:00. | Keflavíkurdekur & go-kart  Hótel Keflavík
Hópurinn sóttur og ekið til Keflavíkur. Eftir innskráningu á hótelið er möguleiki á að taka á því í líkamsrækt, fara í heita pottinn eða gufu og láta nudda sig á eftir eða skella sér í Go-kart og taka keppni. Kl. 20.00 er kvöldverður á völdum veitingastað í Keflavík. Á eftir er stiginn villtur dans áður en haldið er aftur heim á hótel. Brottför frá hótelinu kl. 12.00 á sunnudegi. Auðvitað er hægt að hafa dagskrána öðruvísi og við erum opin fyrir öllum möguleikum.
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð.
Matseðill Ráin | | Snæfellsnesið & örninn, konungurinn  Arnarstapi, horft í norðvestur, Snæfellsjökull í baksýn. Hópurinn sóttur og ekið vestur á Snæfellsnes. Á föstudagskvöld er létt stemning og fólk kynnist umhverfinu.Eftir góðan nætursvefn er lagt af stað um kl. 10:00. Farið í skoðunarferð um Snæfellsnesið. Um kl. 15.30 er komið aftur á Hótel Stykkishólm og fólk teygir úr sér og gerir sig klárt fyrir siglingu og kvöldverð með Sæferðum. Kl. 17:00 hefst sigling um Breiðafjarðareyjar og náttúrufegurðin og fuglalífið skoðað. Ef heppnin er með gæti sést til arnarins, sem er konungur fuglanna. Um borð er þriggja rétta máltíð og tekur siglingin um þrjá til fjóra tíma. Heimferð er um kl. 12:00 á sunnudeginum og komið til höfuðborgarinnar um kl. 15:00-16:00, eftir vel heppnaða helgi.
Hafið samband og við gerum ykkur gott tilboð. | Ath. Þessar ferðir eru tillögur. Hægt er að breyta ferðum og tímasetningum eftir óskum viðskiptavina. Upplýsingar og pantanir í s: 420-6000 | | SBK - Grófin 2 - 4 - 230 Keflavík - Sími: 420 6000 - Fax: 420 6009 -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
|
Síðast uppfært Föstudagur, 23. Maí 2008 01:21 |